Fyrirlestrar & Fræðsla

Sálfræði,
tæknin og
manneskjan

Fyrirlestrar og fræðsluerindi um geðheilsu, tækni og mannlega hegðun — fyrir fyrirtæki, stofnanir og skóla.

Bóka fyrirlestur Sjá yfirlit

Fyrirlestrar í boði

Fyrir neðan má sjá yfirlit yfir fyrirlestra sem eru í boði. Tími er til viðmiðunar — auðvelt er að lengja og stytta eftir þörfum og hafa með eða án umræðna. Einnig er hægt að óska eftir sérsniðnum fyrirlestrum, vinnustofum og fræðsluerindum.

Tækni og sálfræði

Að líða vel í stafrænum heimi

20–40 mín
Vinnustaðir og vellíðan

Heilsuefling á vinnustöðum

30–60 mín
Vinnustaðir og vellíðan

Streita og streitustjórnun

20–60 mín
Uppeldi, skólar og ungmenni

Ungmenni í stafrænum heimi

30–60 mín
Uppeldi, skólar og ungmenni

Geðheilsa unglinga

30–60 mín
Rannsóknir og tölfræði

Tengsl netsamskipta og geðheilsu

30–60 mín
Rannsóknir og tölfræði

Grunnatriði í tölfræði

30–60 mín
Rannsóknir og tölfræði

Grunnatriði í Jamovi fyrir stjórnendur

30–60 mín
Rannsóknir og tölfræði

Sérsniðin fræðsla í tölfræði

Samkomulag
Klínísk sálfræði

Þunglyndi: Að sjá merkin og stíga fyrstu skrefin

30–60 mín
Klínísk sálfræði

Kvíði í daglegu lífi

30–60 mín
Klínísk sálfræði

Streita í allri sinni mynd

30–60 mín
Klínísk sálfræði

Reiði og reiðistjórnun

30–60 mín
Klínísk sálfræði

Geðrækt fyrir almenning – HAM aðferðir

30–60 mín
Aðrir fyrirlestrar

Einmanaleiki

20–30 mín

Hvernig bóka ég?

Sendu línu á ottar@ottar.is og segðu mér aðeins frá viðburðinum: Markhópur, lengd, staðsetning og dagsetning. Ég svara fljótt. Fyrirlestrar geta verið á íslensku eða ensku, á staðnum eða í fjarfundakerfi.


Um mig

Ég er Óttar G. Birgisson, sálfræðingur með doktorsgráðu í heilsufræði frá Háskóla Íslands, þar sem rannsóknir mínar fjölluðu um tengsl netsamskipta og geðheilsu ungs fólks.

Ég er með áralanga reynslu sem sálfræðingur á heilsugæslu og spítölum, þar sem ég hef unnið við greiningu og meðferð geðraskana. Auk klínískra starfa hef ég kennt bæði grunn- og meistaranemum við Háskóla Íslands, meðal annars í sálfræði, tölfræði og aðferðarfræði.

Menntun mín nær til M.Sc. í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík, B.Sc. í sálfræði og framhaldsdiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Ég hef haldið ótal fyrirlestra og fræðsluerindi fyrir sveitarfélög, menntastofnanir, heilbrigðisstofnanir, samtök og fyrirtæki víða um land. Í þeim tengi ég saman vísindalegan grunn, reynslu úr klínísku starfi og mannlega nálgun sem höfðar jafnt til fagfólks sem almennings. Fyrirlestrarnir mínir eru lifandi, aðgengilegir og oft kryddaðir húmor og hlýju, því ég trúi því að fræðsla verði áhrifaríkust þegar hún nær bæði til huga og hjarta.

Ég hef tekið þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum, málstofum og ráðstefnum, og komið að þróun netmeðferða, meðal annars hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Einnig hef ég búið til vefsíður og efni sem styðja við geðrækt og vellíðan, og viðhaldið stöðugri menntun á sviði meðferðar, heilbrigðis, tækni og menntunar.

Auk sálfræðinnar á ég rætur að rekja í tónlist, þar sem ég hef spilað á gítar í hljómsveitum og tekið þátt í skapandi verkefnum í gegnum árin. Ég trúi því að sköpun, tengsl og tjáning séu lykillinn að vellíðan og þroska, og þessi samruni fræðilegrar dýptar og skapandi tjáningar endurspeglast í öllu sem ég geri, hvort sem það er í meðferð, kennslu eða fyrirlestrum.

Ástríða mín liggur í því að tengja fræðin við daglegt líf. Ég vil hjálpa fólki að sjá nýtt samhengi, öðlast skilning og finna hvatningu til jákvæðra breytinga. Ég elska það sem ég geri og finn stöðugan innblástur í því að fræða, hvetja og sjá þegar hugmyndir kveikja áhuga og breytingu hjá fólki.